Auglýsing

Könnun

Notar þú hausfötu þegar þú ferð í renniferð?

Quote

"Discovery consists in seeing what everybody else has seen and thinking what nobody else has thought."

-Albert Szent-Györgyi

PhD Comics

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Slóvenskur sundmaður...

08. apríl 2007 klukkan 06:57
synti niður Amazon ána....alla 5,265km á 66 dögum.

Og við kvörtuðum yfir því hvað við þurftum að synda mikið á meðan við vorum að synda. úff.

meðal annars má geta þess að hann er líka búinn að synda niður Mississippi ána í BNA (3797km) og Yangtze ána í Kína (4003km).

hérna er greinin í heild sinni!!!

Óskemmtilegar fréttir...

05. apríl 2007 klukkan 23:30
Ekki er nú öll vitleysan eins...

http://news.bbc.co.uk/1/hi/england/bradford/6529807.stm

http://news.bbc.co.uk/1/hi/world/europe/6528853.stm


Og hvernig væri ef talandi myndavélar væru teknar upp á Lækjartorgi...

Augljóslega góð ástæða...

29. mars 2007 klukkan 19:27
til að kíkja út um gluggann áður en maður heldur í vinnuna á morgnanna.

Svo vildi til að ég hjólaði heim úr vinnunni uppúr miðnætti síðastliðna nótt í ágætis Denver vorveðri. Undanfarn daga hefur verið yndislegt veður með 15-20 stiga hita og sól og blíðu eins og tíðkast hér í Colorado á vorinn. Í morgunn þegar ég svo ætlaði að hjóla aftur í vinnuna (8 tímum seinna) var staðann hinsvegar allt önnur.

CIMG1348

Af augljósum ástæðum var þess vegna labbað í vinnuna í morgun.

Fleiri myndir frá því í morgun:

CIMG1349

               CIMG1351

Besta frétt sem ég hef lesið lengi...

12. mars 2007 klukkan 15:52

Nakinn sendiherra kallaður heim

Ísraelska utanríkisþjónustan hefur kallað sendiherra Ísraels í El Salvador heim í kjölfar þess að hann fannst kófdrukkinn og nakinn fyrir utan sendiráðið fyrir tveimur vikum. Fréttastofan AFP hefur eftir ráðuneytinu að í sextíu ára sögu hafi vissulega komið upp atvik þar sem erindrekar hafi orðið þjóð sinni til skammar, en að þetta sé hins vegar í fyrsta sinn sem sendiherra hagi sér ósæmilega á almannafæri.

Tzuriel Refael var á síðasta ári hækkaður í tign eftir langt starf hjá utanríkisráðuneytinu og gerður að sendiherra í Miðameríkulýðveldinu El Salvador. Lögregla er sögð hafa fundið Refael á lóð sendiráðsins fyrir tveimur vikum, hann mun hafa verið mjög drukkinn og nakinn, utan hvað hann var bundinn á höndum, og með keflaður með gúmmíkúlu í munni. Refael gat þrátt fyrir ölvun sagt lögreglu nafn sína og stöðu.

Traust almennings á ísraelskum yfirvöldum hefur beðið hnekki undanfarin misseri vegna hneyksla og spillingar. Forseti landsins hefur m.a. verið sakaður um kynferðisofbeldi. Þá hefur Ehud Olmert, forsætisráðherra verið sakaður um spillingu og tengsl við skipulagða glæpastarfsemi.

Birt á mbl.is....

Vorið í Denver...

09. mars 2007 klukkan 16:15
er alltaf frábært. Ég er að spá í að gera þessa síðu að veðurfræðingasíðu fyrir Denver. Hvernig er það. Eins og það sé ekki talað nóg um veðrið á Íslandi, heldur eru að semsagt veðurfréttir frá einni af hraðast vaxandi borgum Amríkunnar (allavega miðað við nýjustu fréttir). Ekki að maður nái að njóta veðursins eitthvað nema svona útum gluggann á rannsóknastofunni. Damn ritgerð. En svona er þetta.

Hvernig er það, er Dabbi ennþá forsætisráðherra....?

Eins gott að maður flýgur ekki með BA...

12. febrúar 2007 klukkan 14:50
hingað og þangað um heiminn. British Airways er semsagt að ræða fyrirhugaðar breytingar á farangursreglum farþega fyrirtækisins. Eins og er, mega farþegar í millilandaflug vera með tvær töskur með sér eins og hjá flestum öðrum millilandaflugfélögum. Eftir að nýjar reglur ganga í garð, kostar hinsvegar $480 (33000 kall) að tékka meira en eina tösku. Er BA semsagt með of marga farþega. Trúi ekki öðru en fólk finni sér aðra kosti í millilandaflugi.

Gúrkutíð...

01. febrúar 2007 klukkan 08:30
í íslenskum fréttum. Getur ekki annað verið en þegar fréttnæmt þykir að unglingar sprengi upp kósett í grunnskóla. Er virkilega ekkert merkilegt að gerast!!! Hmm, einn daginn er það fréttnæmt að viðskiptavinir einhverrar verslunar hafi heyrt í útvarpstæki á kaffistofu tilgreindar verslunar og hafi því verslunareigandi brotið í bága við lög vegna stefgjalda og hinn daginn eru það klósett sprengingar. Kommon...

Veikur...

22. janúar 2007 klukkan 23:24
Já, ég eins og aðrir hef náð mér í þessa líka skemmtilegu flensu. Ekki gaman. Hiti og kvef og .....

Búinn að vera í þessu um helgina og er orðinn þreyttur á því að liggja heima og geta ekki gert neitt. Ógeð.

Svona af því að ég er nýbúinn að vera þar...

17. janúar 2007 klukkan 22:03
og það að ég er í Starbuckslandi dauðans, þá hefur fyrirtækið verið beðið um að loka útibúum sínum sínum (öllum sex) á einum af heilugustu stöðum austurlenskrar menningar, Forboðnu Borginni í Peking. Þetta er vegna þess að það eyðilagði ímynd Kínverskrar menningar og sögu þessa 600 ára gamla griðarstaðs fyrrverandi keisara Kínversku þjóðarinnar. hmmm, já. Þetta var ekki alveg að passa.

Hvernig er þetta...

15. janúar 2007 klukkan 23:36

Vísindamenn í Englandi eru að þróa tyggigúmmí sem kemur til með að minnka svengdartilfinningu hjá fólki. Svona fljótt á litið, þá er þetta kannski þörfin hjá fólki sem finnst það vera vera of vel í holdum. Ahh, bara skella í sig einni plötu eftir hæfilega máltíð og þá er maður góð/ur. Hvernig verður þetta hjá fólki sem þjáist af lystarstoli. Já ég er ekki nógu létt/ur, best að fá sér eina tyggjóplötu og þá þarf ég ekkert að borða það sem eftir er dagsins. Já, lyfjafyrirtæki að þróa eina lausn og búa til annað vandamál í staðinn. Hvernig væri að koma sér bara í gymmið. Væri það ekki bara góð lausn.

Urlið á borðaminnatyggjó greinina: http://news.bbc.co.uk/2/hi/health/6262347.stm